,,Þegar ég horfi á þig sé ég bara heila
15.01.2008 17:07:45 / Rúrý

Þá er þetta allt að klárast :D

 

Vá hvað mér líður yndislega í dag. Skilaði BS-ritgerðinni minni í dag og það er eins og ég sé 100 kílóum léttari. Þetta er nú búið að vera smá stress en þó aðallega í gær og nótt!!! Já ég tók smá maraþon í nótt en þetta hófst allt saman á endanum og ég er mjög sátt með ritgerðina. Ég var að skrifa um óefnislegar eignir sem er svo skemmtilegt og áhugavert efni :D

Ég er nú ekki vön að búa yfir svakalegum fréttum. En nú er ég með eina........í sumar flyt ég til Austurríkis í 5 ár.......TAKK FYRIR......það er ekkert annað. Maggi fékk vinnu sem flugmaður hjá flugfélagi þar og ég ætla að fara með honum. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera en planið er að læra þýskuna og svo í eitthvað frekara nám en óvíst hvaða nám verður fyrir valinu. 

Hrikalega er gaman að vera búin með þessa blessuðu ritgerð :haha:

kv. R


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 16:58:11 / Rúrý

Nú árið er liðið.......

Gleðilegt ár :haha:
 
Þá er árið liðið og það nýja nú þegar hafið. Nokkur áramótaheit verða í gangi þetta árið sem ég ætla ekki að flaska á í þetta sinn. Ég hef svo mikla trú á mér og hef góða tilfinningu fyrir 2008.
Árið 2007 var kannski ekkert æðislega viðburðaríkt en samt bara skemmtilegt. Man alla vegana ekki eftir neinu leiðinlegu :D
 
Markmiðið hjá mér er að afreka eitthvað á þessu ári, kemur samt í ljós hvað það verður ;) Ég er með margt á nálunum þessa dagana.
 
Jæja kveð í bili, verð að halda áfram með þessa yndislegu ritgerð sem ég skila 16. janúar. Ohh hvað maður verður eitthvað einmana þegar þessu er lokið.......nei djók........get ekki beðið :haha:
kv. R

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 19:47:14 / Rúrý

Haaa!! ekkert próf um jólin.........

Ohhh hvað það er æðislegt að þurfa ekki að taka nein próf um jólin :D úff ég er svo að njóta þess.... Fyrsta sinn í endalaust mörg ár, tími til kominn.

Annars er efst í huga að ákveða hvað ég eigi að gefa í jólapakkana í ár. Það er mesti hausverkurinn núna. Ég er nú komin langt áleiðis, búin að kaupa erfiðustu gjöfina :D Til Magga.....og vá hvað hann verður ánægður.......vona ég.....eins gott. 

Eru annars ekki margir að fara að kíkja á jólaballið 21. des á broadway??? Ég og Sigrún ætlum alla vegana að skella okkur. Maður verður nú að fara einu sinni á jólaball í Háskólanum!! Það verður án efa æðislega gaman, létt drukknar og snar geggjaðar ;)

 Jæja þá er það bara hvítvín og ritgerð í kvöld.........

kv. R 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 17:37:20 / Rúrý

BS-ritgerð

 

Vá hvað er langt síðan við höfum skrifað e-h á þessa bloggsíðu. Hún er alveg dauð. En ég ætla að skrifa aðeins núna í staðinn fyrir að vera að læra. Málið er að ég á bara eftir BS-ritgerðina sem ég þarf að skila um miðjan janúar. Það er ekkert mál að skrifa 30 bls ritgerð en það er svo mikið mál þegar maður nennir ekki að koma sér í gang. Ritgerðin gengur hægt og rólega og ég er á góðu róli. Ég öfunda samt alla sem eru búnir með þetta. Ég þarf að fá SPARK í rassinn :D

Í febrúar verður síðan svaka útskriftarpartý og ætla ég og Sigrún að halda partýið saman og vonandi vill Ari líka slást í hópinn. Þannig allir sem skipta máli í lífi okkar þriggja eiga vona á boðskorti þegar nær dregur. 

 En jæja ætla að halda áfram að skrifa og skrifa...........:haha:

 

kv. R 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 13:11:37 / Rúrý

Búin..........................

Ég er loksins búin í prófum og komin í sumarfrí.......JIBBÝ

 Annars verður sumarið svaka skemmtilegt hjá mér. BS ritgerðin verður skrifuð úti á svölum í sólinni og svo alla vegana eitt sumarpróf...... Umm hlakka strax til.

Svo er allt að gerast hjá mér í lífinu núna og þið fáið fljótt að frétta það :)

Nei Sigrún, Hugi, Ari, Stebbi og Gummi ég er ekki ólétt.

Umm það er æðislegt veður og ég ætla út að hlaupa. 

 kv. Rúrý


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:58:43 / Sigrún

.....

Saga frá gærkvöldinu sem Rúrý sagði mér frá:

Hún Rúrý fór að djamma í gær því það var Mágus - Orator. Stelpan drakk eitthvað of mikið og fór á trúnó eitthvað sem fylgir stundum þegar maður djammar!!!

En það er samt spurning hversu slæmt það er þegar maður fer á trúnó við KLÓSETTIÐ??????

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 01:44:01 / Sigrún

Í tilefni....

...þess að við erum að klára prófin á morgun :) og það í Lögfræði, erum ennþá að læra og nóg er eftir en ætlum í tilefni að setja þennan texta eftir Bubba sjálfan vegna aðstæðna okkar, við erum orðnar soldið ruglaðar og soldið SEINAR að ná hlutum..

Hvers vegna eru lög og regla
til að fela hitt og þetta?
Blóðug spor og handjárn smella

skýrslur segja: „Hann  var

alltaf að detta.”

Börðu hann í bílnum  með kylfum og hnúum 

hædd’ann og svívirtu  með tungum hrjúfum
Ekkert sást  nema lítið mar

þet   ta var slys við vorum

ekki þar.

 

Við heyrðum hann kalla, biðja um vatn,

kvartaði líka um honum  væri kalt. 

Seinna um  nóttina talaði út í bláinn. 

það var  ekki fyrr í morgun  að við

sáum að hann væri dáinn.

 

Ekki benda á mig,

segir   varðstjórinn.   

Þetta kvöld var ég að æfa 

lögreglukórinn,
Spyrjið þá sem voru á vakt.

Ég ábyrgist þeir   munu segja 

satt.

Hugsið til okkar og sjáið okkur ELDHRESSAR eftir 12:00 á morgun

kveðjum í bili

Rúrý og Sigrún

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 11:48:53 / Sigrún

BARA.....

.... 4 dagar í próflestri eftir og eftir akkurat 4 sólahringar núna verða bara nokkrar mínútur eftir af seinasta prófinu og hendin ábyggilega orðin ónýt!!! já maður þarf að skrifa mikið í Lögfræðiprófinu og prófið er ekki á tölvu.

En VÁ VÁ VÁ hvað ég hlakka mikið til !!!!!!!!!

því þá styttist óðum að ég taki mitt síðasta próf í háskóla í bili og bara síðasta próf í bili :)

En það þýðir líka að allir útlandabúarnir mínir komi heim, vá hvað mig hlakkar mikið til að fá þær!!! það verður sko gaman þessi jól :)

En núna er bara að halda áfram að læra svo eitthvað próf fari nú vel þessa önnina, þar sem hin gera það líklega ekki!!!

Hlakka til að fá Rúrý til mín á sunnudaginn að læra,vantar að hafa einhvern hérna sem nennir ekki heldur að læra en lætur sig samt hafa það og dregur mig í svaðið með sér. En heyrst hefur að stelpan sé víst flutt til Sandgerðar og er þar að fara að stofna til fjölskyldu með Magga sínum!! (ATH. já þetta er stelpan sem sagði að ég væri úr sveit af því ég bjó í Garðabæ og hló svo á mig og BENTI) já núna hlæ ég að henni og bendi!!!!!!!!!! (ath. þetta eru þó óstaðfestar fréttir)

En farin að reyna að læra eða gera eitthvað annað!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 13:25:23 / Rúrý

Allt að taka enda.......

Jæja þá er loksins bara eitt próf eftir hjá mér en reyndar á Sigrún eftir tvö. Ég hef aldrei lent í annari eins próftöflu og þetta misseri. En það var þannig að ég þufti að taka 3 próf í röð og ekki alveg þau auðveldustu. Reikningshald 3, Skattskil og Fjármálagerningar. En það er æðislegt að þetta sé allt búið og úfff skapsveiflurnar sem voru þessa daga :( En ég segi bara sorry við ykkur sem þurftuð að lenda í þeim.

 Eftir törnina sem var á laugardaginn þá skellti ég mér á djammið með honum Magga mínum og var ferðinni heitið í fertugs afmæli hjá Bergi, sem er maður sem ég vinn hjá. Vá hvað þetta var geðveik afmælisveisla. Flott skemmtiatriði, opinn bar allt kvöldið, endalaust úrval af öllu áfengi. Bara allt það besta! Fordrykkurinn var Mojito og alveg vel sterkur. Eftir fjóra svoleiðis var ég alveg góð. En auðvitað hélt ég áfram endalaust :D

Og svona að hafa það á hreinu að þó svo að ég hafi tekið rúma 2 mánaða áfengispásu þá þýðir það ekki að ég sé ólétt, bara að leiðrétta misskilning. Ég get alveg líka tekið pásu á drykkju út af engu sérstöku ;) 

Núna á ég bara eitt próf eftir sem er 19.des í lögfræði. Hef alveg endalaust marga daga til að læra undir það. Sem er samt ekkert betra því ég er bara ekkert byrjuð að læra fyrir það. En ég byrja núna þegar ég er búin að skrifa þessa færslu ;)

kveð ykkur

R.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 00:07:58 / Sigrún

Gamlar ræður ............

Alltaf þegar maður er að læra undir próf þá finnur maður eitthvað annað að gera, en ég er samt eiginlega búin að læra, en hvenær er maður samt eiginlega búin að læra???

En ég þurfti aðeins að leita að svolitlu í fyrsta árs glósunum mínum þegar ég rakst á soldið sem vekur upp frekar fyndnar minningar hjá okkur systrum!!!

Málið er það að þegar við vorum að bjóða okkur fram sem ritara og gjaldkera Mágusar þá vorum við þvílíkt stressaðar að þurfa að fara með ræðu og vorum eitthvað uppí odda að reyna semja einhverja boring ræðu um hvað við værum klárar og æðislegar þegar hann Hannes vinur okkar kom og heilsaði uppá okkur. Þar sem hann er ræðusnillingur og þekkir hvað við erum miklir bjánar, bauðst hann til að semja ræðurnar fyrir okkur :) og úr varð einn stór brandari sem við hlægjum sko ennþá að, shitt hvað þetta var fyndið.

Fyrir utan ræðurnar, þá skiptum við um hlutverk sem sagt ég (Sigrún) las ræðuna hennar Rúrýjar og Rúrý las ræðuna mína:

Hér koma svo ræðurnar, ef einhver nennir ekki að vera læra þessa dagana: (og já við lásum þetta upp blindfullar kl. 20:00 á föstudagskvöldi fyrir fullum Hverfisbarnum)

Rúrýar - ræða sem ég las upp

Sælir krakkar, ég heiti Þuríður en þið megið bara kalla mig Rúrý. Vissuð þið að það eru til meira en 500 mismunandi tegundir af ritstílum í heiminum. Og ég kann þá alla... eða sko þeir eru allir í tölvunni minni. Þess vegna er ég alveg ótrúlega tilvalin til þess að vera kjörin ritari stjórnarinnar. Ég kann líka vélritun, hraðritun og handritun enda eru strákar alltaf að segja að ég sé svo góð í höndunum! En nóg um það því ég er líka alveg ótrúlega góð í skrautskrift þannig að allar fundargerðir og auglýsingar verða ekki bara ótrúlega rétt stafsettar heldur líka flottar og skrautlegar. Annars held ég líka að þetta sé það sé fæddist til þess að gera, áhugamálin mín eru t.d. pennasöfnun, pennavinir, réttritun, vélritun og margt fleira spennandi. Ég vann til dæmis vélritunarkeppni grunnskóla árið 1999, stafsettningarkeppni örvhentra 2001,2002 og 2005 og síðast en ekki síst var ég valinn ljóshærðasta ljóskan á síðustu NESU ráðstefnu og ég var ekki einu sinni á staðnum.

Fyrir utan alla þessa stórkostlegu kosti sem ég hef að bera er ég líka stoltur handhafi meiraprófs.

 

 



Það er góð og gild ástæða fyrir því að ég fór yfir hæfni mína hér upphafi ræðunar. Málið er nefninlega að ritari stjórnarinnar hefur umsjón með mikilvægasta verkefni stjórnarinnar, það er vísindaferðir. Eins og hefur áður komið fram hefur fráfarandi stjórn staðið sig einstaklega vel í vetur og hefur framboð af vísindaferðum verið mjög gott. Nánast því hvern einasta föstudag hefur verið boðið upp á vísindaferðir, pool-mót eða eitthvað annað skemmtilegt enda hefur veturinn verið þrælskemmtilegur. Þetta er nokkuð sem að ég mun hafa að leiðarljósi á komandi starfsári og gera mitt allra besta til þess að bjóða upp á einhverskonar gleði í hverri viku. Önnur mikilvæg mál sem að vil sjá í forgrunni á komandi starfsári eru til dæmis að Mágusartíðindi vaxi og dafni og að árshátíðin verði sem veglegust.

Svo rétt til þess að enda þetta, að þá kom upp tillaga um að hafa svona hugmyndakassa þar sem að nemendur í viðskiptafræði gætu lagt fram hugmyndir að viðburðum eða skemmtunum sem að þeir myndu vilja sjá verða að veruleika. Persónulega að þá er ég ekkert sérstaklega hrifin af þessu enda er mín stefna innan þessarar stjórnar að gerast algerlega einráð og loka á allar atkvæðagreiðslur og koma bara almennt í veg fyrir hverskyns lýðræðislega atburði líkt og þennan!

NEI DJÓK....ég er að grínast sykurpúðar! XXX-við Rúrý

Ræðan mín (sigrúnar) sem Rúrý las upp:

Hæ ég heiti Sigrún, ég er 21 árs gella úr Garðabæ og er að klára fyrsta árið mitt í Viðskiptafræði. Ég hef áhuga á útivist, ferðalögum og að ríða sko ríða út. Ég er að bjóða mig fram í stjórn Mágusar fyrir komandi starfsár og þar sem að ég eeeelllska peninga að þá langar mig að verða gjaldkeri. Reynsla mín af peningum er alveg ótrúlega yfirgripsmikil. Ég hef stundum unnið mér inn peninga en samt aðallega fengið þá gefins frá pabba útaf því að hann á svo mikið. Svo hef ég eytt peningum og sko alveg ótrúlega mikið af þeim t.d. í Kringlunni, Smáralindinni, Laugarveginum, Mallorca, Mall of America og alveg fullt af fleiri stöðum í heiminum. Þannig að ég myndi segja að þekking mín og reynsla af peningum sé mjög mikil og alþjóðleg!

 

 



En að öllu gamni slepptu að þá vil ég þakka fráfarandi stjórn fyrir frábært og ötullt starf á þessu starfsári sem er senn að ljúka. Félagslífið hefur verið til fyrirmyndar og hefur reynsla mín af Mágus sem fyrsta árs nemi verið hreint út sagt frábær. Stelpurnar hafa skipað sér á stall í sögunni sem fyrsta stjórn Mágusar sem einungis er skipuð kvennmönnum og gert það frábærlega... við skulum gefa þeim gott klapp. Einar Ben sagði í einu ljóða sinna: að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja. Og það eru nákvæmlega kjörorð mín því að vegna þess að núverandi stjórn hefur unnið svo gott starf að þá gefur það mér og öðrum sem eru að bjóða sig fram möguleikann á að gera ennþá betur enda byggjum við á góðum grunni. Líkt og þessi stjórn kom með nýja hluti í ár stefnum við á að brydda upp á skemmtilegum nýjungum á komandi starfsári. Þar má helst nefna Golfmót Mágusar sem er nokkuð sem að mig langar til þess að koma á koppinn.

 

 



Enda fær maður sjaldan betri tækifæri til þess að dressa sig upp eins og þegar maður fer átján holurnar. Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur: þú ert að týja upp á þrettándu holu lítur yfir hæðina og í mistrinu sérðu einhverja veru mótast, þegar hún kemur nær sérðu að þetta er... hver önnur en Sigrún, hún er í köflóttum kakkíbuxum, háum sokkum, svívirðilega flegnum pólóbol og með kaskeyti á höfðinu... strákar, ja og kannski sumar af ykkur stelpunum... ég veit að þið kikknið í hnjánum og við spyrjum að leikslokum hverja ætlið þið að kjósa í gjaldkera?


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 23:48:11 / Sigrún

Reikningshald IV

Jæja já, það er svo fyndið þegar maður fer loksins að lesa glósurnar fyrir próf hvað maður fattar hvað þær geta í raun og veru kannski hafa hjálpað manni eitthvað!!! en samt verð að segja frá einu ég er búin að vera í kasti hérna heima hjá mér yfir REIKNINGSHALD 4 glósunum!!!

Já hvernig er það hægt, spurja sig flestir, hér kemur svarið:

  • Ég tók bókfærslu sem valfag í 10. bekk
  • Ég var í 3. ár í bókfæslu í versló, 3, 4 og 6. bekk
  • Og er búin að taka reikningshald 1, 2, 3 og er núna í 4 í HÍ

Í 3. KAFLA já í 3. kafla (myndi skilja ef þetta væri 1. kafli) koma þessar staðhæfingar fram, eins gott að það sé HEILL KAFLI um þetta:

  • DEBIT must equal CREDITS (þetta er alveg í stórum rauðum stöfum)

næsta glæra

  • Debit = "left"; Credit = "Right"
  • Síðan er sínt hvernig þetta virkar allt saman, settir upp T- reikningar svona svo maður skilji þetta nú alveg (Döhh)
  • Síðan kemur gamla góða Reikningshald 1 formúlan sem allir ættu nú að fara þekkja Eignir = Skuldir + Eigið fé (ok ég skal viðurkenna að við notum þetta enn)
  • Svo koma 7 sýnidæmi um hvernig maður á að færa inní þá jöfnu

Að lokum....

  • Dagbókafærslur eru skráðar í dagbók!!!!!!!!!!!!!!!!! MAGNAÐ

Ég er bara komin á glæru 30 af 55 og ég býð spennt eftir framhaldinu!!

En já flestir skilja mig ekki en vá mér finnst þetta allavega fyndið  :lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol:

kv. Sigrún reikningshald heili með húmor fyrir því

P.S. maður ætti kannski að fara hjálpa Bjarna Frímanni með að semja brandarana sína


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 22:46:14 / Rúrý

skólinn............

Það er gaman að velta því fyrir sér af hverju maður byrjar alltaf svona seint að læra fyrir próf.

Ég veit það ekki, ég veit alla vegana að ég á eftir að læra nóg og prófin eru að nálagast. Það er bara allt of stutt í þau. Vonum samt að þetta reddist :D

kv. R


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 20:28:50 / Rúrý

FFFUUUUUCCCCKKKKK!!!!!!

Þetta eru sko slæmar fréttir..................ÓVEÐUR nálgast hratt.  Hvað get ég gert, ég er orðin stressuð núna og veðrið er ekki komið. Eða á að kalla þetta stress, ég fékk nett taugaáfall þegar ég var að hlusta á Sigga storm í veðurfréttunum áðan.

Þetta verður líka ekkert lítill vindur, þetta verður sko STÓR vindur.

Mér fannst alveg tilefni að blogga núna, því þetta liggur á hjarta mínu þessa stundina. Þegar vonda veðrið kom um daginn þá gat ég ekki sofið alla nóttina fyrir helvítis hávaða í vindinum.

Taliði við mig eftir hádegi á morgun og tékkið hvort ég verði ekki dauð!!!!! Það eru sko líkur.........

kv. Rúrý


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 10:04:53 / Sigrún

Elskidda...

Bara svona til að vega uppá móti síðasta blogginu hennar Rúrýjar, þá verð ég bara að segja að ég dýrka þetta veður sem er akkurat núna (veit samt að Rúrý er svo hrædd í svona veðri að hún bara liggur við grætur)

En já það er svo gaman að vera bara inni, læra, vera undir sæng, horfa á video eða bara spjalla við vinkonurnar (ohh sakna stelpnanna minna )

 

 

 

En annars er það bara þessi hópaverkefni, hver segir að það sé ekki hópavinna í HÍ???? Það eru bara 7 hópverkefni eftir og mánuður eftir að skólanum, össs þetta er svo hressandi :)

 

 

Annars er föstudagur og enginn vísindaferð í kvöld og það er bara gott, þar sem KALLA OG KVENNAKVÖLDIÐ ER EFTIR VIKU, það verður sko skrall, ég og Rúrý erum einmitt úperdúper spenntar og ég ætla meiri segja að taka hana Önnu Fríðu með mér, hver segir nei við nöktum karlmönnum, ýmsum skemmtiatriðum og endalausu áfengi?????

 

kveðja að sinni úr brjálaða veðrinu

Sigrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 19:27:55 / Rúrý

Brjáluð......

Ég er alveg öskureið út í Háskóla Íslands:^) Þeir sem eru í sömu kúrsum og ég vita alveg hvað ég er að tala um............Djöfull þoli ég þetta ekki lengur, kannski er ég líka bara svolítið pirruð akkurat núna og greyið Sigrún þarf að þola þetta núna.

Ég er líka pirruð út af helv... Gallup. Þeir hringja í mig á hverju kvöldi svona á milli 6 og 8. Ég hef aldrei svarað þeim þar sem þetta lendir bara alltaf á því að ég er að gera eitthvað annað og heyri ekki í símanum. Þeir hætta ekki að hringja og ég er að verða brjáluð því ég er búin að segja þeim einu sinni áður að hætta að hringja í mig og ég hafi engan áhuga að svara þessum asnalegu spurningum þeirra. (Ég meina ég var ýkt leiðinleg við greyið stelpuna sem þurfti að hringja í mig) Hvað á maður annað að gera???? Ég hélt að það væri nóg að svara ekki símanum í svona 2 vikur og þá skyldi fólk að maður nennir ekki og hefur ekki áhuga að tala við það.......

Ég ætla að hætta þessu, og reyna að vera minna pirruð.........:haha:

Gallup hættið að hringja í mig:!:

kv. Rúrý


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10